Fréttir

true

Jarðskjálfti á Vesturlandi í morgun

Jarðskjálfti mældist á Vesturlandi klukkan korter fyrir tíu í morgun. Í færslu sem Eldfjalla- og náttúruvárhópur Suðurlands birti á Facebook fyrr í dag segir að skjálftinn hafi verið í eldstöðvakerfi Ljósufjalla og átt upptök sín 5 km austur af Langavatni á Mýrum. Er þetta sagt vera til marks um aukna jarðskjálftavirkni á svæðinu á þessu…Lesa meira

true

Búkalú á morgun

Annað kvöld verður Búkalú sýning á Söguloftinu í Borgarnesi. Um er að ræða glæsisýningu Margrétar Maack og er þetta í annað sinn sem hún kemur með sýningu á Söguloftið. Þessi sýning er þó alveg ný, með nýju fólki og nýjum atriðum. „Þetta er ástríðuverkefni hjá mér en ég hef verið að skemmta í kabarett víðs…Lesa meira

true

Býr til skart og lítil málverk

Laugardaginn 2. október síðastliðinn hélt listakonan Michelle Bird sína mánaðarlegu sýningarröð á heimili sínu í Borgarnesi sem hún umturnar í listagallerí. Sýningarnar eru einungis einn dag hverju sinni og koma allskonar listamenn úr öllum áttum á heimili Michelle til að sýna list sína í hinum ýmsu formum. Þennan laugardag var Lara Becker að sýna verkin…Lesa meira

true

Heildarframlög jöfnunarsjóðs

Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga var haldinn síðastliðinn þriðjudag. Þar kom fram að heildarframlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga hafi verið um 53,4 milljarðar króna á síðasta ári. Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, sagði í ávarpi sínu á fundinum að sveitarfélögin séu nú að njóta umfangsmikilla aðgerða ríkisins vegna heimsfaraldursins og að þær hafi með beinum eða óbeinum hætti…Lesa meira

true

Gul viðvörun við Breiðafjörð í kvöld

Gul viðvörun er víða um land í dag og fram á morgundag. Á Vesturlandi nær viðvörunin til Breiðafjarðar og tekur hún gildi kl. 21:00 í kvöld og varir til kl. 5:00 í fyrramálið. Þar er spáð norðaustan 18-23 m/s og hviðum um 35 m/s. Takmarkað skyggni vegna rigningar, einkum á fjallvegum. Veðurstofa Íslands segir að…Lesa meira

true

Tap í fyrsta leik

Meistaraflokkur kvenna í Skallagrími hófu tímabilið í gærkvöldi með tapi gegn suðurnesjaliðinu Keflavík, í Keflavík. Leikurinn var jafn framan af og það var ekki fyrr en um miðbik annars leikhluta að heimastúlkur fóru að skríða fram úr þeim grænklæddu. Eftir hálfleik juku Keflvíkingar enn fremur í forskot sitt og endaði leikurinn í 16 stiga sigri…Lesa meira

true

Nýliðakvöld Slökkviliðs Borgarbyggðar

Slökkvilið Borgarbyggðar auglýsir á vef Borgarbyggðar nýliðakvöld sem haldið verður þann 25. október. Í auglýsingunni segir að slökkviliðið leiti að öflugum einstaklingum, 20 ára og eldri af öllum kynjum til að ganga til liðs við hópinn. Lausar stöður í Borgarnesi, á Hvanneyri, í Reykholti og á Bifröst. Kynningarkvöld á starfsemi slökkviliðsins verður mánudagskvöldið 25. október…Lesa meira

true

Kröftugir Skagastrákar

Skagastrákarnir Helgi Arnar Jónsson og Alexander Örn Kárason stóðu sig vel á Heimsmeistaramóti unglinga í klassískum kraftlyftingum í Svíþjóð í síðustu viku. Helgi keppti í -83 kg flokki og bætti hann sig í öllum greinum. Hann setti nýtt Íslandsmet í hnébeygju þegar hann lyfti 235 kg og í réttstöðulyftu þegar hann náði 270 kg upp.…Lesa meira

true

Þjóðgarðsmiðstöð í Hellissandi orðin fokheld

Bygging Þjóðgarðsmiðstöðvar á Hellissandi gengur vel en framkvæmdir hófust sumarið 2020 og er byggingin nú fokheld og innivinna komin af stað. Það er verktakafyrirtækið Húsheild sem sér um framkvæmdirnar. Að sögn Ólafs Ragnarssonar, annars eiganda Húsheildar, ganga framkvæmdir mjög vel. „Staðan er bara býsna góð og það er góður gangur á verkinu. Skilatími er áætlaður…Lesa meira

true

Rafmagnslaust á Skógarströnd

Rafmagnslaust er á Skógarströnd vegna bilunar. Enn er unnið að því að finna bilunina svo ekki er hægt að vita hversu langt er í rafmagn á svæðinu. Fólk sem gæti haft upplýsingar við bilanaleit eru beðnir um að hafa samband við Svæðisvakt RARIK Vesturlandi í síma 528-9390. Hægt er að skoða kort af svæðinu sem…Lesa meira