Fréttir

true

Íbúafundur um sameiningarvalkosti í Reykhólahreppi var í gærkvöldi

Í gærkvöldi var haldinn í Reykhólaskóla íbúafundur um greiningu sameiningarvalkosta Reykhólahrepps. Róbert Ragnarsson og Gunnar Úlfarsson frá RR Ráðgjöf fóru yfir ferli sameiningar sveitarfélaga og þá sameiningarmöguleika sem nefndir hafa verið, ef Reykhólahreppur kannaði vilja til sameiningar við önnur sveitarfélög. Gestur fundarins var Gauti Jóhannesson forseti bæjarstjórnar Múlaþings en það varð til við sameiningu Borgarfjarðarhrepps,…Lesa meira

true

Heiðrún tilnefnd til Íslensku menntaverðlaunanna

Tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna hafa verið kynntar, á alþjóðlegum degi kennara sem er í dag. Verðlaunin eru veitt til að auka veg menntaumbótastarfs og vekja athygli á vönduðu skóla- og frístundastarfi með börnum og unglingum. Einn kennari af Vesturlandi fékk tilnefningu í flokknum; framúrskarandi kennari. Það er Heiðrún Hámundardóttir, kennari við Brekkubæjarskóla og Tónlistarskólann á…Lesa meira

true

Nýtt Akranesmet í sundi í piltaflokki

Sundmaðurinn Einar Margeir Ágústsson, sem er 16 ára, bætti Akranesmetið í piltaflokki (15-17 ára) í 50 metra skriðsundi í 25 metra laug á Arena móti Ægis um helgina. Gamla metið sem Ágúst Júlíusson setti árið 2006, var því orðið tæplega 15 ára gamalt. Einar Margeir synti 50 metrana á 25 sekúndum sléttum og bætti met…Lesa meira

true

Útisundlaugin í Borgarnesi lokuð í dag

Útisundlaugin og Pottarnir í Borgarnesi verða lokaðir í dag, þriðjudaginn 5. október, vegna tengivinnu hjá Orkuveitunni. Í tilkynningu frá Borgarbyggð eru íbúar og aðrir gestir beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem lokunin kann að valda.Lesa meira

true

Smáforrit til að auðvelda viðburðahöldurum

Embætti landlæknis hefur gefið út nýtt smáforrit sem heitir Skanni C-19. Forritið er ætlað að auðvelda þeim sem standa fyrir fjölmennum viðburðum að sannprófa gildi vottorða um neikvæða niðurstöðu Covid-19 prófum. Forritið les svokallaðan QR-kóða á vottorðinu og koma þá upp upplýsingar um hvort vottorðið sé gilt eða ekki. Forritið er aðeins ætlað til að…Lesa meira

true

Búast við nokkrum fundum

Undirbúningsnefnd kjörbréfanefndar kom saman á sinn fyrsta fund klukkan eitt í dag. Í nefndinni er Sjálfstæðisflokkur með einn fulltrúa, Framsóknarflokkur með tvo og Flokkur fólksins, Píratar, Samfylking og Vinstri grænir eru með einn fulltrúa hver. Þá eiga Miðflokkur og Viðreisn rétt á áheyrnarfulltrúa. Aðeins kjördæmakjörnir fulltrúar sitja í nefndinni. Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks og einn…Lesa meira

true

Töluverð aukning á íbúðum í byggingu á Akranesi

Samkvæmt talningu Samtaka iðnaðarins á íbúðum í byggingu á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni þess og á Norðurlandi mælist samdráttur á höfuðborgarsvæðinu. En í nágrannasveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins fjölgar íbúðum í byggingum nokkuð milli ára og eru nú 1.088 talsins samanborið við 819 íbúðir í september 2020. Flestar íbúðir sem eru í byggingu í nágrannasveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins eru í Reykjanesbæ,…Lesa meira

true

Krauma fékk flestar Ferðagjafirnar

Ferðagjöfin árið 2021 rann út um síðustu mánaðamót. Hægt er að sjá á svokölluðu Mælaborði ferðaþjónustunnar hversu margir Íslendingar notuðu sína 5.000 króna ferðagjöf. Alls voru tæplega 219 þúsund ferðagjafir sóttar og rúmlega 195 þúsund þeirra voru fullnýttar. Þá er hægt að sjá á mælaborðinu í hvaða landshlutum gjafirnar voru notaðar. Flestir notuðu sína gjöf…Lesa meira