{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Undirbúningsnefnd kjörbréfanefndar kom saman á sinn fyrsta fund klukkan eitt í dag. Í nefndinni er Sjálfstæðisflokkur með einn fulltrúa, Framsóknarflokkur með tvo og Flokkur fólksins, Píratar, Samfylking og Vinstri grænir eru með einn fulltrúa hver. Þá eiga Miðflokkur og Viðreisn rétt á áheyrnarfulltrúa. Aðeins kjördæmakjörnir fulltrúar sitja í nefndinni. Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks og einn nefndarmeðlima, sagði í samtali við RÚV eftir fundinn í dag að undir venjulegum kringumstæðum haldi nefndin allnokkra fundi en nú sé einnig verið að fást við flóknari mál en áður. „Þannig að þetta varða nokkrir fundir, en við reynum auðvitað að vinna hratt, en við þurfum líka að vanda okkur,“ er haft eftir Birgi í frétt hjá RÚV. Þá segir hann ljóst að í það minnsta þrjár kærur verði teknar fyrir vegna málsins en það geta enn borist kærur og því of snemmt að segja til um hver niðurstaða nefndarinnar verður.",
"innerBlocks": []
}