Einar Margeir Ágústsson setti nýtt piltamet í 50 metra skriðsundi. Ljósm. Sundfélag Akraness

Nýtt Akranesmet í sundi í piltaflokki

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Sundmaðurinn Einar Margeir Ágústsson, sem er 16 ára, bætti Akranesmetið í piltaflokki (15-17 ára) í 50 metra skriðsundi í 25 metra laug á Arena móti Ægis um helgina. Gamla metið sem Ágúst Júlíusson setti árið 2006, var því orðið tæplega 15 ára gamalt. Einar Margeir synti 50 metrana á 25 sekúndum sléttum og bætti met Ágústs um 14 sekúndubrot.\r\n\r\nAlls sendi ÍA 16 keppendur (13 ára og eldri) á Arena mótið sem fram fór í Laugardalslaug og fengu keppendur ÍA alls 11 gull, 14 silfur og 6 brons á mótinu. Þá tóku tíu sundmenn tólf ára og yngri þátt í Speedo mótinu í Keflavík. Var þetta fyrsta mótið hjá þessum aldursflokki í haust og stóðu þau sig mjög vel og bættu sig bæði í tækni og hraða.",
  "innerBlocks": []
}
Nýtt Akranesmet í sundi í piltaflokki - Skessuhorn