
Heiðrún Hámundardóttir hefur verið tilnefnd til Íslensku menntaverðlaunanna í flokki framúrskarandi kennara. Ljósm. Brekkubæjarskóli
Heiðrún tilnefnd til Íslensku menntaverðlaunanna
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna hafa verið kynntar, á alþjóðlegum degi kennara sem er í dag. Verðlaunin eru veitt til að auka veg menntaumbótastarfs og vekja athygli á vönduðu skóla- og frístundastarfi með börnum og unglingum. Einn kennari af Vesturlandi fékk tilnefningu í flokknum; framúrskarandi kennari. Það er Heiðrún Hámundardóttir, kennari við Brekkubæjarskóla og Tónlistarskólann á Akranesi. Hún er ein af fimm kennurum sem fá tilnefningu að þessu sinni og er hún tilnefnd fyrir metnaðarfulla og árangursríka tónmennta- og tónlistarkennslu. Úr umsögn sem fylgdi tilnefningu Heiðrúnar segir: „Heiðrún er tónmenntakennari sem fer sínar eigin leiðir í kennslu og alltaf með áhuga nemenda að leiðarljósi. Hún hefur einstakt lag á að ná til allra nemenda og hefur þann eiginleika að ná góðum tengslum við fólk á öllum aldri. Allir nemendur fá að blómstra á eigin forsendum og fá tækifæri til að prófa sig áfram hvort sem það er með því að spila á hljóðfæri, syngja eða sjá um tæknimál á öllum viðburðum skólans.“\r\n\r\nVerðlaunin sjálf verða veitt miðvikudaginn 10. nóvember næstkomandi.",
"innerBlocks": []
}