
Framkvæmdir við nýtt fjölbýlishús á Akranesi.
Töluverð aukning á íbúðum í byggingu á Akranesi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Samkvæmt talningu Samtaka iðnaðarins á íbúðum í byggingu á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni þess og á Norðurlandi mælist samdráttur á höfuðborgarsvæðinu. En í nágrannasveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins fjölgar íbúðum í byggingum nokkuð milli ára og eru nú 1.088 talsins samanborið við 819 íbúðir í september 2020. Flestar íbúðir sem eru í byggingu í nágrannasveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins eru í Reykjanesbæ, eða 279 talsins sem er aðeins minna en á sama tíma í fyrra. Næst flestar íbúðirnar eru í Árborg, 274 talsins sem er 98 íbúðum fleiri en í fyrra. Á Akranesi eru nú 205 íbúðir í byggingu sem er ríflega tvöföldun á milli ára.",
"innerBlocks": []
}