
Frá fundinum í gærkvöldi. Ljósm. Reykhólahreppur
Íbúafundur um sameiningarvalkosti í Reykhólahreppi var í gærkvöldi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í gærkvöldi var haldinn í Reykhólaskóla íbúafundur um greiningu sameiningarvalkosta Reykhólahrepps. Róbert Ragnarsson og Gunnar Úlfarsson frá RR Ráðgjöf fóru yfir ferli sameiningar sveitarfélaga og þá sameiningarmöguleika sem nefndir hafa verið, ef Reykhólahreppur kannaði vilja til sameiningar við önnur sveitarfélög. Gestur fundarins var Gauti Jóhannesson forseti bæjarstjórnar Múlaþings en það varð til við sameiningu Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar. Hans skilaboð voru að engar patentlausnir væru til en menn ættu að leita möguleika og ræða lausnir frekar en að horfa á það sem mögulega væri að.\r\n\r\nÍbúar Reykhólahrepps geta komið sjónarmiðum sínum á framfæri í gegnum samráðsforrit þar til klukkan 22 í kvöld. Þar geta þeir svarað eftirfarandi spurningum: Ætti Reykhólahreppur að hefja samningaviðræður? Hvaða valkostir ættu að vera í forgangi? Hver ættu að vera áhersluatriði Reykhólahrepps í viðræðum? Þá eru íbúar beðnir að senda verkefnishópnum ábendingar og spurningar hvað varðar málið. Athygli vekur þó hvað stuttan tíma íbúar hafa fyrir sín sjónarmið því eins og áður sagði rennur fresturinn út klukkan 22 í kvöld, þriðjudag.",
"innerBlocks": []
}