Fréttir

true

Enginn kannast við að eiga veg

Í frétt hér á vefnum 18. nóvember sl. var sagt frá ríflega 300 metra vegstubbi í Reykholti í Borgarfirði, austari afleggjarann að þorpinu, sem jafnframt er vegur að lögbýlunum Varmalandi og Akri. Enginn vill kannast við að hafa viðhald vegarins á sinni forsjá og því er ekkert viðhald á honum eins og raunar má sjá…Lesa meira

true

Pottverjar fögnuðu vetri með veislu

Það er jafnan léttur og hress hópur sem kemur saman í heita pottinum við Jaðarsbakkalaug á Akranesi í morgunsárið. Nú í morgun var slegið upp veislu og vetri fagnað í bleikri birtu og tunglsljósi. Smellt var meðfylgjandi mynd og send til Skessuhorns með kærri kveðju til lesenda.Lesa meira

true

Af verkefnum lögreglu í liðinni viku

Í vikunni sem leið voru 49 ökumenn stöðvaðir og kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. Að auki voru 486 ökumenn myndaðir af hraðamyndavélabifreið embættisins við að aka of hratt. Einn var handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Tveir ökumenn voru stöðvaðir og kærðir fyrir að hafa ekki réttindi til aksturs…Lesa meira

true

Jákvæður flutningsjöfnuður í öllum sveitarfélögum á Vesturlandi

Búferlaflutningar hafa verið hagfelldir á Vesturlandi undanfarin fimm ár. Í nýrri Glefsu Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) kemur fram að fleiri fluttu til en frá öllum átta sveitarfélögum landshlutans á tímabilinu 2021–2025. Meðal þess sem fram kemur er að árið 2025 var flutningsjöfnuður jákvæður í fimm sveitarfélögum af átta. Hvalfjarðarsveit kom best út með tæplega…Lesa meira

true

Límt var fyrir linsu hraðamyndavélar

Föstudaginn 23. október síðastliðinn var átt við hraðamyndavélabifreið Lögreglunnar á Vesturlandi þar sem hún var við hraðamælingar á Vesturlandsvegi. Límt hafði verið yfir linsu myndavélarinnar með þeim afleiðingum að hún gat ekki myndað hraðakstursbrot á meðan. Á síðu Lögreglunnar á Vesturlandi segir að slík háttsemi hafi áhrif á umferðareftirlit lögreglu, enda gegna hraðamyndavélar mikilvægu hlutverki…Lesa meira

true

Veðurstöð fyrirhuguð við golfvöllinn

Áform eru um að koma upp veðurstöð á Akranesi í samstarfi við Veðurstofu Íslands og Veitur. Fyrirhuguð staðsetning er innan lóðar golfvallarins og jafnframt er til skoðunar að setja þar upp mælibúnað til að fylgjast með loftgæðum í bænum. Málið var tekið fyrir á fundi skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar 19. október síðastliðinn. Ráðið tók jákvætt…Lesa meira

true

Veitur hefja borun eftir heitu vatni á Borg

Veitur hyggjast hefja borun rannsóknarholu eftir heitu vatni á Borg á Mýrum í nóvember. Undirbúningur framkvæmda hefst nú í október og er stefnt að því að borun ljúki í janúar. Í kjölfarið verða gerðar rannsóknir á holunni. Staðsetning borholunnar var valin að tillögu sérfræðinga Íslenskra orkurannsókna (ÍSOR) í samvinnu við auðlindasérfræðinga Orkuveitunnar. Fyrstu framkvæmdir felast…Lesa meira

true

Opnað fyrir tilnefningar til FKA viðurkenninga

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til viðurkenninga Félags kvenna í atvinnulífinu. Fulltrúar atvinnulífsins og almenningur eru hvött til að tilnefna konur sem hafa skarað fram úr, sýnt frumkvæði eða verið öðrum fyrirmynd. Tilnefna má í einum eða fleiri flokkum til og með 22. nóvember 2026. Árlega heiðrar Félag kvenna í atvinnulífinu, FKA konur fyrir framlag…Lesa meira

true

Skrifstofa Hvalfjarðarsveitar lokuð vegna fræðsluferðar

Skrifstofa Hvalfjarðarsveitar verður lokuð hluta fimmtudagsins 29. október og allan föstudaginn 30. október vegna fræðsluferðar starfsfólks. Skrifstofunni verður lokað klukkan 13 á fimmtudag og opnað á ný mánudaginn 2. nóvember klukkan 10. “Sveitarfélagið biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem lokunin kann að valda,” segir í tilkynningu.Lesa meira

true

Framlengja rétt til sjúkratrygginga erlendis

Með breytingum á lögum um sjúkratryggingar, sem samþykktar voru á Alþingi í júní sl., var felld brott almenn heimild til endurgreiðslu kostnaðar vegna heilbrigðisþjónustu sem sjúkratryggðir verða fyrir utan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) og hún bundin við afmarkaða hópa, svo sem námsmenn. Í frumvarpi um breytingarnar var einkum vísað til þess að þessi réttur væri ekki…Lesa meira