Myndavélarbúnaður í bifreið sem lögreglan á Vesturlandi hefur til umráða. Ljósm. úr safni / LVL.

Límt var fyrir linsu hraðamyndavélar

Föstudaginn 23. október síðastliðinn var átt við hraðamyndavélabifreið Lögreglunnar á Vesturlandi þar sem hún var við hraðamælingar á Vesturlandsvegi. Límt hafði verið yfir linsu myndavélarinnar með þeim afleiðingum að hún gat ekki myndað hraðakstursbrot á meðan.