
Pottverjar fögnuðu vetri með veislu
Það er jafnan léttur og hress hópur sem kemur saman í heita pottinum við Jaðarsbakkalaug á Akranesi í morgunsárið. Nú í morgun var slegið upp veislu og vetri fagnað í bleikri birtu og tunglsljósi. Smellt var meðfylgjandi mynd og send til Skessuhorns með kærri kveðju til lesenda.