
Af verkefnum lögreglu í liðinni viku
Í vikunni sem leið voru 49 ökumenn stöðvaðir og kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. Að auki voru 486 ökumenn myndaðir af hraðamyndavélabifreið embættisins við að aka of hratt. Einn var handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Tveir ökumenn voru stöðvaðir og kærðir fyrir að hafa ekki réttindi til aksturs bifreiða sem þeir voru að aka. Sjö eigendur ökutækja voru kærðir fyrir að leggja bifreið sinni þar sem það er óheimilt.