
Bergborun gerði tilraunaborholur neðan við Borg vorið 2024. Hér er verið að blása úr holunni og bergryk þeytist út henni. Ljósm. úr safni Skessuhorns / gj
Veitur hefja borun eftir heitu vatni á Borg
Veitur hyggjast hefja borun rannsóknarholu eftir heitu vatni á Borg á Mýrum í nóvember. Undirbúningur framkvæmda hefst nú í október og er stefnt að því að borun ljúki í janúar. Í kjölfarið verða gerðar rannsóknir á holunni. Staðsetning borholunnar var valin að tillögu sérfræðinga Íslenskra orkurannsókna (ÍSOR) í samvinnu við auðlindasérfræðinga Orkuveitunnar. Fyrstu framkvæmdir felast í gerð borplans og lagningu nauðsynlegra tenginga fyrir vatn, rafmagn og frárennsli. Búast má við umferð vinnuvéla á svæðinu á meðan undirbúningur stendur yfir.