Opnað fyrir tilnefningar til FKA viðurkenninga

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til viðurkenninga Félags kvenna í atvinnulífinu. Fulltrúar atvinnulífsins og almenningur eru hvött til að tilnefna konur sem hafa skarað fram úr, sýnt frumkvæði eða verið öðrum fyrirmynd. Tilnefna má í einum eða fleiri flokkum til og með 22. nóvember 2026. Árlega heiðrar Félag kvenna í atvinnulífinu, FKA konur fyrir framlag þeirra til atvinnulífs og samfélags með FKA Viðurkenningunni, Hvatningarviðurkenningu FKA og Þakkarviðurkenningu FKA. „Tilnefningar eru opnar – hverja vilt þú sjá heiðraða? Vertu hreyfiafl, hafðu áhrif á valið með að tilnefna,“ segir í tilkynningu frá FKA.