Fréttir

true

Undirbúa ljósmyndasýningu Vitans

Ljósmyndasýning Vitans, félags áhugaljósmyndara á Akranesi, verður opnuð klukkan 18 fimmtudaginn 22. október á Innnesvegi 1 á Akranesi (við hliðina á Kallabakaríi) og verður opin til kl. 21. Boðið verður upp á veitingar. Sýningin verður opin virka daga frá kl. 16-19 og 11-17 um helgar, en henni lýkur 1. nóvember. Á meðfylgjandi myndum eru félagar…Lesa meira

true

Þjófnaðir og líkamsárás meðal verkefna lögreglu

Í liðinni viku voru 56 ökumenn stöðvaðir og kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. Auk auki voru 552 ökumenn myndaðir af myndavélabifreið embættisins við að aka of hratt. Einn ökumaður var handtekinn grunaður um að aka undir áhrifum fíkniefna. Sex eigendur ökutækja voru kærðir fyrir að leggja bifreið sinni þar sem…Lesa meira

true

Hallgrímshátíð í Saurbæ verður um næstu helgi

Hallgrímshátíð hefst með tónleikum kl. 16.00 á laugardaginn. Sönghópurinn Cantores Islandiae undir stjórn Ágústar Inga Ágústssonar flytur fagra og sjaldheyrða tónlist tileinkuð Maríu Guðsmóður og ljóðum Hallgríms Péturssonar.  Flytjendahópurinn er óvenjulegur; sönghópur karlaradda, forn blásturshljóðfæri, mezzósópran og orgel. Aðgangur er ókeypis. Á sunnudag verður hátíðarmessa kl. 14.00, síðan kirkjukaffi í boði sóknarnefndar í Sumarbúðum KFUM…Lesa meira

true

ÍA úr leik í VÍS-bikarnum eftir tap gegn Álftanesi

Karlalið ÍA í körfuknattleik er úr leik í VÍS-bikarnum eftir 73:95 tap gegn Álftanesi í AvAir höllinni á Akranesi í gærkvöldi, mánudaginn 19. október. Gestirnir náðu undirtökunum snemma leiks og tryggðu sér öruggan sigur. Rúmlega 200 manns fylgdust með leiknum. Leikurinn var jafn framan af og staðan 19:21 um miðjan fyrri hálfleik. Þá tóku gestirnir…Lesa meira

true

Skagamenn tryggðu sér sigur á Fram með dramatískum hætti

Skagamenn unnu dramatískan 4:2 sigur á Fram á Lambhagavellinum í Reykjavík í gærkveldi, mánudaginn 19. október, í næstsíðustu umferð efri hluta Bestu deildar karla í fótbolta. Tvö mörk í uppbótartíma tryggðu ÍA stigin þrjú og lyftu liðinu upp í fjórða sæti deildarinnar. Framarar byrjuðu af krafti og Kristófer Konráðsson kom heimamönnum yfir strax á fjórðu…Lesa meira

true

Edit sest á þing

Edit Ómarsdóttir tók í gær sæti á Alþingi í fyrsta sinn og skrifaði undir drengskaparheit við stjórnarskrána. Hún er varaþingmaður Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi og kemur inn í forföllum Maríu Rutar Kristinsdóttur þingmanns. Edit er búsett á Akranesi og er tölvunarfræðingur með reynslu af rekstri, stjórnun og viðskiptaþróun í tæknigeiranum.Lesa meira

true

Gengur vel í tippinu

Félagakerfi ÍA í Getraunum sló í gegn og fékk 13 rétta á enska getraunaseðilinn síðastliðinn laugardag. Vinningurinn var um 900 þúsund krónur. Fjölmargir Skagamenn eru þátttakendur í félagakerfinu og fá þeir allir glaðning í sinn hlut. Einn tippari til viðbótar var með 13 rétta og er sá búsettur í Borgarnesi. Þrír tipparar voru svo með…Lesa meira

true

Fjallað um fæðingar án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks

Starfshópur sem heilbrigðisráðherra skipaði til að fjalla um fæðingar án aðkomu heilbrigðisstarfsmanns og ýmis álitamál sem því tengjast, hefur skilað ráðherra skýrslu með niðurstöðum sínum og tillögum. Síðustu ár hefur fjölgað tilvikum þar sem heilbrigðisstarfsfólk er beðið um að votta barnsfæðingu sem þeir hafa ekki verið viðstaddir. Eins og fram kemur í skýrslu hópsins gera…Lesa meira

true

Fiskafli dróst saman í september

Alls var 102 þúsund tonnum af fiski landað á Íslandi í september síðastliðnum, sem er 23% minni afli en í sama mánuði í fyrra. Mestur var samdrátturinn í uppsjávarveiðum, samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands. Uppsjávarafli nam tæplega 70 þúsund tonnum í september og dróst saman um 30% frá fyrra ári. Botnfiskafli var tæp 31 þúsund…Lesa meira

true

Héldu haustfund SSV

Árlegur haustfundur Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi fór fram í síðustu viku á Varmalandi í Borgarfirði. Á fyrri degi þinghaldsins var kynnt fjárhagsáætlun samtakanna fyrir næsta ár. Í ljósi þess að fjöldi nýrra fulltrúa er nú í sveitarstjórnum var farið yfir ýmsa starfsemi sem heyrir undir samtökin, svo sem Markaðsstofu Vesturlands og Sorpurðun. Gestir ávörpuðu þingfulltrúa.…Lesa meira