Fjallað um fæðingar án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks

Starfshópur sem heilbrigðisráðherra skipaði til að fjalla um fæðingar án aðkomu heilbrigðisstarfsmanns og ýmis álitamál sem því tengjast, hefur skilað ráðherra skýrslu með niðurstöðum sínum og tillögum. Síðustu ár hefur fjölgað tilvikum þar sem heilbrigðisstarfsfólk er beðið um að votta barnsfæðingu sem þeir hafa ekki verið viðstaddir. Eins og fram kemur í skýrslu hópsins gera barnalög ekki ráð fyrir að börn geti fæðst án aðkomu heilbrigðisstarfsmanns og stjórnvöld hafa verið óviðbúin því hvernig tryggja skuli réttmæta skráningu í þjóðskrá. Vitað er um að minnsta kosti 23 tilvik þar sem konur kusu að fæða án heilbrigðisstarfsmanns árin 2022–2025.