
Svipmynd frá fyrra degi fundarins. Ljósm. mm
Héldu haustfund SSV
Árlegur haustfundur Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi fór fram í síðustu viku á Varmalandi í Borgarfirði. Á fyrri degi þinghaldsins var kynnt fjárhagsáætlun samtakanna fyrir næsta ár. Í ljósi þess að fjöldi nýrra fulltrúa er nú í sveitarstjórnum var farið yfir ýmsa starfsemi sem heyrir undir samtökin, svo sem Markaðsstofu Vesturlands og Sorpurðun. Gestir ávörpuðu þingfulltrúa. Það voru þau Grétar S Theódórsson samskiptastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga auk þingmannanna Ólafs Adolfssonar og Maríu Rutar Kristinsdóttur. Vinnuhópar tóku síðdegis til starfa en um kvöldið var kvöldverður þar sem sveitarstjórnarfulltrúar og starfsmenn voru heiðraðir, eins og lesa má um í frétt hér á síðunni frá því um helgina.