Fréttir

true

Urðu að fresta vígslu nýs íþróttahúss

Til stóð næstkomandi laugardag að halda vígsluhátíð Heiðarborgar, íþróttahúss og samfélagsmiðstöðvar í Hvalfjarðarsveit, en því miður varð að slá því á frest. „Ástæða frestunarinnar er sú að ekki næst að ljúka nauðsynlegri öryggisúttekt vegna brunavarna fyrir fyrirhugaðan opnunardag. Öryggi gesta og starfsfólks verður ávallt að vera í fyrirrúmi og því er ekki annað í stöðunni…Lesa meira

true

Auglýst eftir styrkumsóknum í Hvalfjarðarsveit

Hvalfjarðarsveit auglýsir í dag í Skessuhorni eftir umsóknum um styrki úr Menningarsjóði og Íþrótta- og æskulýðssjóði sveitarfélagsins. Styrkirnir eru ætlaðir verkefnum og viðburðum sem fram fara á árinu 2027. Í umsókn þarf meðal annars að gera grein fyrir markmiði og tilefni verkefnis, þeirri styrkupphæð sem óskað er eftir, tíma- og verkáætlun, kostnaðaráætlun og annarri fjármögnun.…Lesa meira

true

Sveitarstjórn mótmælir áformum um bann við hvalveiðum

Á fundi sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar í gær var samþykkt samhljóða ályktun um atvinnumál og framtíð hvalveiða. Í henni áréttar sveitarstjórn mikilvægi hvalveiða og þeirrar starfsemi sem þeim tengist fyrir atvinnulíf í Hvalfjarðarsveit og í nærliggjandi sveitarfélögum. „Starfsemi hvalstöðvarinnar í Hvalfirði á sér langa sögu og hefur á starfstímum skapað fjölbreytt störf, bæði beint við veiðar og…Lesa meira

true

Endurnýja raflagnir á tveimur stöðum í Borgarfirði

Rarik stefnir í haust á að að endurnýja raflagnir á tveimur af núverandi strengleiðum í neðanverðum Borgarfirði. Samkvæmt upplýsingum Skessuhorns er framkvæmdin hluti af kerfisáætlun Rarik til þess að anna þeirri rafvæðingu sem fyrirhuguð er í Borgarnesi og Borgarfirði. Fyrra verkefnið er skilgreint sem „Vatnshamrar að Seleyri.“ Í stað loftlínu sem liggur m.a. ofan við…Lesa meira

true

Mikil hreyfing á fylgi flokka í Norðvesturkjördæmi

Í nýrri skoðanakönnun Gallup, sem gerð er fyrir Ríkisútvarpið um fylgi flokka til Alþingis, kemur fram talsverð breyting frá síðustu könnun í Norðvesturkjördæmi. Sjálfstæðisflokkur mælist nú lang stærstur í kjördæminu, fær 26,3% fylgi og tvo kjördæmakjörna þingmenn. Samfylking dalar talsvert, mælist nú með 20,2% og einn kjördæmakjörinn. Miðflokkur mælist með 19,1% og sömuleiðis einn þingmann.…Lesa meira

true

Barnamenningarhátíð Vesturlands verður sett á morgun

Barnamenningarháíðin Barnó – Best Mest Vest! verður sett í félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík fimmtudagskvöldið 1. október kl. 18. „Það verður mikið um dýrðir, en hátíðin fer fram um allt Vesturland út októbermánuð. Dagskráin er fjölbreytt og miðast við að börn frá fæðingu upp í 18 ára finni eitthvað við sitt hæfi,“ segir Sigursteinn Sigurðsson verkefnastjóri…Lesa meira

true

Krabbameinsfélag Borgarfjarðar skipuleggur bleika rökkurgöngu

Krabbameinsfélag Borgarfjarðar hefur staðið fyrir að lýsa bleiku ljósi á nokkrar kirkjur í héraðinu í samvinnu og samráði við sóknarnefndir undanfarin ár. Einnig hefur félagið staðið fyrir bleikum göngum og samverustund á þremur stöðum í tengslum við bleikan október. Þetta hefur verið með þeim hætti að fólk hittist og gengur saman stuttan hring með bleika…Lesa meira

true

Íþróttasagan rifjuð upp á göngu um Akranes á miðvikudag

Sérstök íþróttasöguganga verður farin um Akranes í dag, miðvikudagin 30. september, í tilefni 80 ára afmælis Íþróttabandalags Akraness. Vakin er athygli á að í fyrstu fréttum og tilkynningum vegna viðburðarins var farin dagavillt og gangan sögð farin á þriðjudegi, það leiðréttist hér með. Kellingar kunna vel að blása lífi í liðna tíð og munu að…Lesa meira

true

Minningarsjóður lýkur starfsemi sinni

Pengingagjöfin verður stofnframlag til kaupa á konsertflygli á Akranes Síðdegis í gær var stutt athöfn í Tónlistarskóla Akraness. Þar færðu fulltrúar fjölskyldu Geirlaugs Árnasonar skólanum að gjöf eftirstöðvar á reikningi Minningarsjóðs um Geirlaug. Gjöfin er að andvirði ríflega 1,7 milljón króna og er ætluð til hljóðfærakaupa við skólann. Jónína Erna Arnardóttir skólastjóri veitti gjöfinni viðtöku…Lesa meira

true

Verðbólga slagar í sex prósent

Verðbólga mælist nú 5,9 prósent, samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands. Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,39 prósent milli ágúst og september. Án húsnæðis hækkaði vísitalan um 0,40 prósent milli mánaða og hefur hækkað um 5,7 prósent síðustu tólf mánuði. Verðbólga hefur ekki mælst hærri síðan í ágúst árið 2024, fyrir meira en tveimur árum síðan. Verð…Lesa meira