
Hækkun virðisaukaskatts á eldsneyti úr 11 í 24% vegur þyngst í hækkun verðbólgu nú. Ljósm. ÓHK
Verðbólga slagar í sex prósent
Verðbólga mælist nú 5,9 prósent, samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands. Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,39 prósent milli ágúst og september. Án húsnæðis hækkaði vísitalan um 0,40 prósent milli mánaða og hefur hækkað um 5,7 prósent síðustu tólf mánuði. Verðbólga hefur ekki mælst hærri síðan í ágúst árið 2024, fyrir meira en tveimur árum síðan.