
Hvalskurður á plani. Ljósm. mm
Sveitarstjórn mótmælir áformum um bann við hvalveiðum
Á fundi sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar í gær var samþykkt samhljóða ályktun um atvinnumál og framtíð hvalveiða. Í henni áréttar sveitarstjórn mikilvægi hvalveiða og þeirrar starfsemi sem þeim tengist fyrir atvinnulíf í Hvalfjarðarsveit og í nærliggjandi sveitarfélögum. „Starfsemi hvalstöðvarinnar í Hvalfirði á sér langa sögu og hefur á starfstímum skapað fjölbreytt störf, bæði beint við veiðar og vinnslu og óbeint hjá þjónustu- og verktakafyrirtækjum á svæðinu,“ segir í upphafi ályktunarinnar.