
Krabbameinsfélag Borgarfjarðar skipuleggur bleika rökkurgöngu
Krabbameinsfélag Borgarfjarðar hefur staðið fyrir að lýsa bleiku ljósi á nokkrar kirkjur í héraðinu í samvinnu og samráði við sóknarnefndir undanfarin ár. Einnig hefur félagið staðið fyrir bleikum göngum og samverustund á þremur stöðum í tengslum við bleikan október. Þetta hefur verið með þeim hætti að fólk hittist og gengur saman stuttan hring með bleika filmu á vasaljósi í rökkrinu, hugsar til þeirra sem hafa fengið það verkefni að ganga í gegnum krabbameinsmeðferð á einhvern hátt og aðstandenda þeirra, vina og vandamanna. Að göngu lokinni er komið í hús og prestur stýrir stuttri kyrrðarstund og einhver einstaklingur talar frá eigin brjósti um reynslu sína og upplifun af krabbameini, ýmist hjá sjálfum sér eða einhverjum nákomnum. Einnig verður gerð grein fyrir starfi félagsins. Síðan hefur verið bleikur varningur til sölu og rennur allur ágóðinn til Krabbameinsfélags Íslands.