
Barnamenningarhátíð Vesturlands verður sett á morgun
Barnamenningarháíðin Barnó - Best Mest Vest! verður sett í félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík fimmtudagskvöldið 1. október kl. 18. „Það verður mikið um dýrðir, en hátíðin fer fram um allt Vesturland út októbermánuð. Dagskráin er fjölbreytt og miðast við að börn frá fæðingu upp í 18 ára finni eitthvað við sitt hæfi,“ segir Sigursteinn Sigurðsson verkefnastjóri hjá SSV í samtali við Skessuhorn.
Barnó var haldin með þessu sniði í fyrsta skipti á síðasta ári. Viðburðir og verkefni fara nú fram um allt Vesturland út mánuðinn. „Markmið verkefnisins er að börn skapi, njóti og taki þátt og því er lögð áhersla á smiðjur þar sem þau láta sköpunarkraftinn blómstra, en jafnframt að þau fái líka að vera áhorfendur og njóta menningar. Rík áhersla er lögð á að viðburðir á Barnó séu faglegir þannig að öll börn geti notið framúrskarandi menningar í sinni heimabyggð óháð bakgrunni og efnahag. Þá eru aukamarkmið hátíðarinnar að vera hvetjandi til menningarstarfs ætluðu yngri kynslóðinni og kynna fyrir þeim hinn fjölbreytta heim lista. Barnó var þannig með opið kall þar sem listafólk og stofnanir á Vesturlandi gafst tækifæri að láta ljós sitt skína, en þar að auki eru aðkeyptir viðburðir frá aðilum sem hafa skarað framúr á sviði barnamenningar,“ segir Sigursteinn.
Hann segir að í ár verði tæplega 70 atriði á barnamenningarhátíðinni í umsjón 41 aðila. „Þannig að það má með sanni segja að brugðist hafi verið við kallinu með miklum ágætum. Viðburðirnir eru afar fjölbreyttir og til dæmis má nefna myndlistarsmiðju í Safnahúsi Borgarfjarðar, Krakkarökkurrokk - stórtónleikar í Grundarfirði, skartgripasmiðja í Búðardal, hönnunarsmiðja Þykjó í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands á Akranesi og víðar, sirkussýningar, kvikmyndasmiðjur fyrir elstu deildir leikskóla og margt fleira. Áhugasömum er bent á að fylgjast með Barnó á Facebook og Instagram og á heimasíðu verkefnisins ssv.is/barno.“ Heildar dagskrá hátíðarinnar er að verða fullmótuð og verður hún auglýst í Skessuhorni í næstu viku, miðvikudaginn 7. október.
„Viðburðir voru vandlega valdir af stýrihópi Barnó sem er skipaður krökkum allsstaðar af Vesturlandi og eru þeim færðar þakkir fyrir vel unnin störf. Barnó er eitt af áhersluverkefnum Sóknaráætlunar Vesturlands og er stutt af Barnamenningarsjóði Íslands.“