
Auglýst eftir styrkumsóknum í Hvalfjarðarsveit
Hvalfjarðarsveit auglýsir í dag í Skessuhorni eftir umsóknum um styrki úr Menningarsjóði og Íþrótta- og æskulýðssjóði sveitarfélagsins. Styrkirnir eru ætlaðir verkefnum og viðburðum sem fram fara á árinu 2027. Í umsókn þarf meðal annars að gera grein fyrir markmiði og tilefni verkefnis, þeirri styrkupphæð sem óskað er eftir, tíma- og verkáætlun, kostnaðaráætlun og annarri fjármögnun. Umsóknum kann að verða vísað frá ef nauðsynlegar upplýsingar eða gögn vantar.
Umsóknarfrestur er til og með 1. nóvember næstkomandi og verða umsóknir sem berast eftir þann tíma ekki teknar til afgreiðslu. Stefnt er að því að afgreiðslu umsókna verði lokið fyrir árslok. Sótt er um rafrænt í þjónustugátt Hvalfjarðarsveitar, undir liðnum „11 – Styrkumsóknir“. Úthlutunarreglur sjóðanna og nánari upplýsingar má finna á vef sveitarfélagsins.