
Urðu að fresta vígslu nýs íþróttahúss
Til stóð næstkomandi laugardag að halda vígsluhátíð Heiðarborgar, íþróttahúss og samfélagsmiðstöðvar í Hvalfjarðarsveit, en því miður varð að slá því á frest. „Ástæða frestunarinnar er sú að ekki næst að ljúka nauðsynlegri öryggisúttekt vegna brunavarna fyrir fyrirhugaðan opnunardag. Öryggi gesta og starfsfólks verður ávallt að vera í fyrirrúmi og því er ekki annað í stöðunni en að bíða með hátíðlega opnun þar til öllum nauðsynlegum öryggiskröfum hefur verið fullnægt. Okkur þykir leitt að þurfa að fresta opnuninni, ekki síst þar sem mikil tilhlökkun hefur verið fyrir því að taka þetta glæsilega mannvirki formlega í notkun með íbúum og öðrum gestum. Við látum þetta þó ekki slá okkur út af laginu. Heiðarborg bíður okkar og við munum opna húsið með enn meiri krafti þegar allt er klárt og öruggt. Ný dagsetning opnunarhátíðar verður kynnt um leið og hún liggur fyrir. Við þökkum fyrir skilninginn og hlökkum til að fagna saman í Heiðarborg við fyrsta tækifæri,“ segir í tilkynningu frá Hvalfjarðarsveit.