Fréttir

true

Þresking tilraunareita hófst á sunnudaginn

Síðastliðinn sunnudag hófst þresking á tilraunareitum í kornrækt á Hvanneyri. Þreskivélin er sérhönnuð til að vinna í tilraunareitum sem þessum, er smávaxin og viktar og mælir uppskeruna í hverjum reit. Verkefni þetta er hluti af nytja- og kynbótastarfi í rannsóknum á hvaða bygg- og hveititegundir henta best fyrir íslenskar aðstæður. Alls var í vor hveiti…Lesa meira

true

Sea Spirit væntanlegt á Akranes á föstudag

Skemmtiferðaskipið Sea Spirit, sem útgerðarfyrirtækið Poseidon gerir út, er væntanlegt til hafnar á Akranesi föstudaginn 25. september. Skipið er skráð í Portugal og tekur 114 farþega en 72 eru í áhöfn þess. Þetta verður fjórða skipakoman á Akranes í sumar. ATH! Fréttin hefur verið uppfærð m.t.t. réttrar dagsetningar.Lesa meira

true

Mótmæla niðurskurði í stoðkerfi farsældarþjónustu

Velferð – samtök stjórnenda í velferðarþjónustu sveitarfélaga á Íslandi, mótmæla boðuðum niðurskurði ríkisins á stoðkerfi farsældarþjónustu sveitarfélaga. Samtökin eru uggandi gagnvart fyrirætlunum stjórnvalda um að fella niður framlög úr ríkissjóði til sveitarfélaga vegna framkvæmdar laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna nr. 86/2021. „Samkvæmt framlögðu frumvarpi til fjárlaga stefnir í að rúmur milljarður króna…Lesa meira

true

Atvinnuleysi var 6,8% í ágúst

Hagstofan hefur gefið út að fjöldi atvinnulausra í landinu á aldrinum 16 til 74 ára var 15.900 í ágústmánuði. Árstíðaleiðrétt hlutfall atvinnulausra var 6,8%, hlutfall starfandi var 73,7% og atvinnuþátttaka 79%.Lesa meira

true

Hittast á ljósmyndasafninu á miðvikudögum

Býsna fjölbreytt og öflugt starf eldri borgara er á Akranesi. Meðfylgjandi mynd var tekin í kaffipásu í morgun á Bókasafni Akraness. Hittist hópur fólks þar á miðvikudagsmorgnum og vinnur við að greina og merkja gamlar ljósmyndir í eigu safnsins. Þannig er menningarminjar gerðar enn gagnlegri.  Annar frá hægri sitjandi er Árni S. Einarsson sem fagnar…Lesa meira

true

Fjölbreytt dagskrá í Borgarbyggð í Íþróttaviku Evrópu

Borgarbyggð tekur þátt í Íþróttaviku Evrópu dagana 23.–30. september í samstarfi við Ungmennasamband Borgarfjarðar. Markmið vikunnar er að hvetja fólk á öllum aldri til aukinnar hreyfingar og heilbrigðari lífshátta og verður fjölbreytt dagskrá í boði víða um sveitarfélagið. Meðal þess sem boðið verður upp á eru fríir opnir tímar undir handleiðslu Írisar Grönfeldt, íþróttafræðings Borgarbyggðar,…Lesa meira

true

Hvasst við fjöll í fyrramálið

Haustlægðir með úrkomu og hvassviðri einkenna veðráttuna næstu daga. Á morgun, fimmtudag, hvessir af austri, einkum sunnanlands. Undir Eyjafjöllum er reiknað með hviðum, allt að 35-40 m/s frá því snemma í fyrramálið og til kl. 11 eða 12. Eins í Öræfum á sama tíma. Á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli má búast við 30-35 m/s í…Lesa meira

true

Rolluræsi komið undir þjóðveginn við Skorholt

Síðastliðna nótt var hringveginum á móts við Skorholt í Melasveit lokað og umferð beint um Melasveitarveg á meðan. Ástæðan var sú að koma þurfti fyrir ræsisröri undir veginn. Ekki er gert ráð fyrir að vatn fari um rörið heldur kindur. Stórt fjárbú er í Skorholti en megin hluti afréttarlands bænda er handan þjóðvegarins allt upp…Lesa meira

true

Ákveða að leggja grenndarstöðvar niður

Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar hefur ákveðið að hætta við að byggja upp stærri grenndarstöð við Dalbraut, eins og kynnt hefur verið meðal annars í fréttum Skessuhorns, og loka öllum grenndarstöðvum í bænum. Íbúar á Esjuvöllum mótmæltu fyrirhugaðri staðsetningu stærri grenndarstöðvar við Dalbraut og ákvað bæjarstjórn að taka tillit til þeirra mótmæla. Nú hefur verið ákveðið að móttaka…Lesa meira

true

Íþróttasagan rifjuð upp á göngu um Akranes

Sérstök íþróttasöguganga verður farin um Akranes þriðjudaginn 29. september í tilefni 80 ára afmælis Íþróttabandalags Akraness. Kellingar kunna vel að blása lífi í liðna tíð og munu að þessu sinni leiða þátttakendur um söguslóðir íþróttalífsins á Skaganum. ÍA fagnar 80 ára afmæli á þessu ári og af því tilefni verður sjónum beint að þeirri miklu…Lesa meira