Mótmæla niðurskurði í stoðkerfi farsældarþjónustu

Velferð – samtök stjórnenda í velferðarþjónustu sveitarfélaga á Íslandi, mótmæla boðuðum niðurskurði ríkisins á stoðkerfi farsældarþjónustu sveitarfélaga. Samtökin eru uggandi gagnvart fyrirætlunum stjórnvalda um að fella niður framlög úr ríkissjóði til sveitarfélaga vegna framkvæmdar laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna nr. 86/2021. „Samkvæmt framlögðu frumvarpi til fjárlaga stefnir í að rúmur milljarður króna renni ekki til sveitarfélaganna eins og gert hafði verið ráð fyrir. Þetta fjármagn hefur verið grundvöllur þess að byggja upp, manna og styrkja snemmtæka og samþætta þjónustu í þágu barna og fjölskyldna þeirra um land allt. Samtökin gera jafnframt alvarlegar athugasemdir við að svo umfangsmikil ákvörðun um niðurfellingu á fjármögnun lögbundinna verkefna skuli tekin einhliða af hálfu ríkisins, án undangengins samráðs við sveitarfélögin eða heildstæðs mats á stöðu mála,“ segir í tilkynningu frá samtökunum.

Með lögum nr. 86/2021 voru sveitarfélögum falin ný og umfangsmikil verkefni, m.a. með lögfestingu á hlutverkum tengiliða og málstjóra skv. 17. og 20. gr. laganna. „Frá upphafi var viðurkennt að verkefninu fylgdi verulegur umframkostnaður fyrir sveitarfélög, sem ríkinu bar að mæta. Ákvæði um fjármögnunina voru sérstaklega fest í sessi í 13. gr. laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, þar sem kveðið er á um framlög til að mæta umframkostnaði sveitarfélaga. Í lögskýringargögnum með farsældarlögunum kom skýrt fram að framlögum skyldi ekki hætt sjálfkrafa við lok aðlögunartímabils, heldur að fram skyldi fara heildstætt endurmat á fjárþörf og ávinningi. Ákvörðun um niðurskurð án slíks mats felur í sér grófan forsendubrest. Þá gengur ákvörðunin þvert gegn niðurstöðum nýlegrar stjórnsýsluúttektar Ríkisendurskoðunar, sem benti sérstaklega á að innleiðingu farsældarlaganna væri ekki lokið og að frekari uppbygging þjónustukerfa væri nauðsynleg til að markmið laganna næðust.“

Þá segir Velferð að fullyrðingar um að sveitarfélögin hafi nú þegar náð fram þeim ávinningi sem lögunum er ætlað að skila, eða hafi bolmagn til að bera kostnaðinn ein, eiga sér enga stoð í raunveruleikanum. „Sveitarfélögin standa frammi fyrir miklu tvíþættu álagi: Þau eru að fjárfesta í uppbyggingu snemmtæks stuðnings á 1. og 2. þjónustustigi á sama tíma og þörf fyrir umfangsmikla og kostnaðarsama þjónustu á 2. og 3. stigi fer vaxandi. Ávinningur snemmtækrar íhlutunar kemur fram til lengri tíma, en meðan á innleiðingu stendur sitja sveitarfélögin eftir með aukinn umframkostnað á öllum stigum.“

Loks segir í ályktun Velferðar að fjármagn frá ríkinu hafi verið nýtt í fremstu víglínu: „Til að skapa svigrúm fyrir tengiliði í leik- og grunnskólum til að grípa börn snemma og tryggja að ekki verði rof á þjónustu við flutning milli skólastiga; mönnun stöðugilda málstjóra, tengiliða og þverfaglegra teyma til að styðja við fjölskyldur áður en vandi þeirra verður umfangsmeiri. Verði framlagið fellt niður er hætt við að einhver sveitarfélög verði nauðbeygð til að fækka stöðugildum, sem augljóslega mun veikja getu þeirra til að uppfylla lögbundnar skyldur sínar.“