Fjölbreytt dagskrá í Borgarbyggð í Íþróttaviku Evrópu

Borgarbyggð tekur þátt í Íþróttaviku Evrópu dagana 23.–30. september í samstarfi við Ungmennasamband Borgarfjarðar. Markmið vikunnar er að hvetja fólk á öllum aldri til aukinnar hreyfingar og heilbrigðari lífshátta og verður fjölbreytt dagskrá í boði víða um sveitarfélagið. Meðal þess sem boðið verður upp á eru fríir opnir tímar undir handleiðslu Írisar Grönfeldt, íþróttafræðings Borgarbyggðar, í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi. Þá verða opnar og gjaldfrjálsar æfingar fyrir börn og ungmenni í körfubolta, frjálsum íþróttum, blaki, sundi og fótbolta hjá aðildarfélögum UMSB. Metabolic Borgarnesi stendur jafnframt fyrir vinaviku þar sem öllum er velkomið að prófa æfingar.