Hvasst við fjöll í fyrramálið

Haustlægðir með úrkomu og hvassviðri einkenna veðráttuna næstu daga. Á morgun, fimmtudag, hvessir af austri, einkum sunnanlands. Undir Eyjafjöllum er reiknað með hviðum, allt að 35-40 m/s frá því snemma í fyrramálið og til kl. 11 eða 12. Eins í Öræfum á sama tíma. Á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli má búast við 30-35 m/s í mestu hviðum frá því um kl. 8 og til hádegis.