Allar þrjár grenndarstöðvarnar á Akranesi verða nú fjarlægðar. Innan þéttbýlisins mun verða sett upp móttökustöð fyrir gler og málm enda úrgangsflokkar sem ber samkvæmt lögum og safna.

Ákveða að leggja grenndarstöðvar niður

Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar hefur ákveðið að hætta við að byggja upp stærri grenndarstöð við Dalbraut, eins og kynnt hefur verið meðal annars í fréttum Skessuhorns, og loka öllum grenndarstöðvum í bænum. Íbúar á Esjuvöllum mótmæltu fyrirhugaðri staðsetningu stærri grenndarstöðvar við Dalbraut og ákvað bæjarstjórn að taka tillit til þeirra mótmæla. Nú hefur verið ákveðið að móttaka fyrir pappír og plast verði framvegis í móttökustöð Gámu í Höfðaseli. Opnunartími hjá Gámu var nýlega lengdur. Hann er alla virka daga frá kl. 10-18 og að auki til kl. 20 á fimmtudögum. Á laugardögum er opið frá 9-15. Þeir grenndargámar sem nú eru staðsettir við Bíóhöllina, Byggðasafnið og Dalbraut verða fjarlægðir.

„Þetta er niðurstaða okkar eftir samtal við íbúa, meðal annars þá sem búa í grennd við móttökustöðina við Dalbraut,“ segir Sturlaugur Haraldsson bæjarstjóri í tilkynningu. „Gámar fyrir málm og gler verða áfram staðsettir innan bæjarins, en ákvörðun um staðsetningu þeirra verður tekin á næstu vikum. Það eru úrgangsflokkar sem okkur ber lögum samkvæmt að safna og fólk er ekki með tunnur fyrir við heimili sín,“ segir Sturlaugur. Hann bætir við að Fjöliðjan muni líkt og áður taka á móti textíl, en fatagámar eru staðsettir við Smiðjuvelli 9. Tekið er fram að ekkert gjald er tekið fyrir losun á pappír/pappa og plasti hjá Gámu, enda er um endurnýtanlegt hráefni að ræða. „Nú fer málið að nýju inn til skipulags- og umhverfisráðs til frekari úrvinnslu,“ segir í tilkynningu bæjarstjórnar.