Kellingar munu segja frá. Myndin er frá Írskum dögum fyrr á árinu. Ljósm. mm

Íþróttasagan rifjuð upp á göngu um Akranes

Sérstök íþróttasöguganga verður farin um Akranes þriðjudaginn 29. september í tilefni 80 ára afmælis Íþróttabandalags Akraness. Kellingar kunna vel að blása lífi í liðna tíð og munu að þessu sinni leiða þátttakendur um söguslóðir íþróttalífsins á Skaganum.