Fréttir

true

Stjórnarráðið beinir auglýsingakaupum til fjölmiðla

Stjórnarráðið hefur ákveðið að beina auglýsingakaupum ráðuneytanna í auknum mæli til fjölmiðla í stað samfélagsmiðla og annarra miðla. Breytingin er liður í aðgerðaáætlun stjórnvalda í málefnum fjölmiðla sem kynnt var í desember síðastliðnum. Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið reið á vaðið og ákvað að kaupa einungis auglýsingar af fjölmiðlum. Önnur ráðuneyti hafa nú tekið upp sama…Lesa meira

true

Góðar heimtur í fyrstu leit

Réttað var í Þverárrétt í Borgarfirði síðdegis á sunnudag og í gærmorgun. Að sögn bænda gekk vel að smala afréttinn og það var staðfest með tölum um heimtur. Meðfylgjandi eru nokkrar myndir úr réttinni. Veðrið var með besta móti, stemningin góð og lömbin væn.Lesa meira

true

Litla kartöfluhátíðin á safnasvæðinu í Görðum

Litla kartöfluhátíðin fór fram á safnasvæðinu í Görðum á Akranesi síðastliðinn laugardag í blíðskapar veðri. Fjölmargir gestir lögðu leið sína á svæðið, keyptu kartöflur og annað nýupptekið grænmeti beint frá bændum, hlýddu á fróðlegt erindi um sögu kartöflunnar og gæddu sér á heldur óvenjulegu góðgæti – kartöflukonfekti. Hátíðin var nú haldin í fimmta sinn. Kartöflurækt…Lesa meira

true

Þriðji flokkur karla Íslandsmeistari

Þriðji flokkur karla hjá ÍA tryggði sér á dögunum Íslandsmeistaratitilinn í knattspyrnu með 3:2 sigri á Breiðabliki þegar ein umferð er eftir af Íslandsmótinu. Liðið, sem er skipað leikmönnum fæddum 2010 og 2011, hefur átt afar gott keppnistímabil og bætir Íslandsmeistaratitlinum við sigur á Rey Cup í lok júlí. Strákarnir eiga jafnframt möguleika á að…Lesa meira

true

Karen Anna keppti með framtíðarhópi SSÍ gegn Færeyjum

Sundkonan Karen Anna Orlita frá Akranesi keppti um liðna helgi með framtíðarhópi Sundsambands Íslands gegn Færeyjum. Keppnin er ætluð 13–15 ára sundfólki og er þetta annað árið sem hún fer fram – og jafnframt í annað sinn sem Karen Anna tekur þátt. Í ár fór mótið fram í Keflavík og ríkti þar frábær stemning. Áherslan…Lesa meira

true

Varað er við suðaustan hvassviðri í nótt

Vegagerðin bendir á að næstu nótt hvessir úr suðaustri um suðvestanvert landið. Hviður verða allt að 35 m/s á Kjalarnesi, við Hafnarfjall og á norðanverðu Snæfellsnesi. Jafnvel einnig við Eyjafjöll. Lægir nærri hádegi.Lesa meira

true

Orkusalan opnar hraðhleðslustöðvar í Stykkishólmi

Orkusalan opnaði á föstudaginn tvær hraðhleðslustöðvar við Nesveg 1 í Stykkishólmi. Opnunin er liður í áframhaldandi uppbyggingu StoppuStuðs og styrkir aðgengi rafbílaeigenda að öflugri hleðslu á Snæfellsnesi. „Við erum stöðugt að bæta við hleðslunetið okkar og eru hraðhleðslustöðvarnar góður kostur fyrir ferðalanga sem þurfa að hlaða hratt og örugglega á lengri ferðum. Að ferðast á…Lesa meira

true

Voces Thules byrjar haustdagskrá Kalmans

Sönghópurinn Voces Thules ríður á vaðið á haustdagskrá Kalman – tónlistarfélags Akraness með tónleikum í Vinaminni fimmtudaginn 17. september nk. kl. 20. Á efnisskránni eru helgisöngvar úr íslenskum miðaldahandritum, meðal annars til heiðurs Þorláki helga, Magnúsi Orkneyjajarli og heilögum Nikulási. Þá flytur hópurinn syrpu íslenskra þjóðlaga auk veraldlegra söngva sem tengjast Egils sögu, Grettis sögu…Lesa meira

true

Skallagrímur upp um deild þrátt fyrir tap í úrslitaleiknum

Skallagrímur lauk keppni í 5. deild karla í knattspyrnu þegar liðið mætti Hömrunum í úrslitaleik á VÍS-vellinum laugardaginn 12. september. Hamrarnir höfðu betur, 2:0, og fögnuðu þar með sigri í 5. deild. Bæði lið höfðu þó þegar tryggt sér sæti í 4. deild að ári. Hamrarnir byrjuðu leikinn af krafti og settu Borgnesinga undir talsverða…Lesa meira

true

Stefna á sláturtíðartvímenning

Í gærmorgun, á árlegum fundi forsvarsmanna Bridgefélags Borgarfjarðar, undir réttarvegg í Þverárrétt, var ákveðið að fyrsta spilamennska í félaginu verður mánudaginn 28. september kl. 19:30 í Logalandi. Þá verður fyrsta kvöld í tvímenningi sem fengið hefur nafnið Sláturtíðartvímenningur. Allir spilarar nær og fjær eru hvattir til að mæta og þeim lofað blíðum viðtökum, en ekki…Lesa meira