Voces Thules byrjar haustdagskrá Kalmans

Sönghópurinn Voces Thules ríður á vaðið á haustdagskrá Kalman – tónlistarfélags Akraness með tónleikum í Vinaminni fimmtudaginn 17. september nk. kl. 20. Á efnisskránni eru helgisöngvar úr íslenskum miðaldahandritum, meðal annars til heiðurs Þorláki helga, Magnúsi Orkneyjajarli og heilögum Nikulási. Þá flytur hópurinn syrpu íslenskra þjóðlaga auk veraldlegra söngva sem tengjast Egils sögu, Grettis sögu og Sturlungu.