Ingimundur og Jón kampakátir í réttunum. Ljósm. mm

Stefna á sláturtíðartvímenning

Í gærmorgun, á árlegum fundi forsvarsmanna Bridgefélags Borgarfjarðar, undir réttarvegg í Þverárrétt, var ákveðið að fyrsta spilamennska í félaginu verður mánudaginn 28. september kl. 19:30 í Logalandi. Þá verður fyrsta kvöld í tvímenningi sem fengið hefur nafnið Sláturtíðartvímenningur. Allir spilarar nær og fjær eru hvattir til að mæta og þeim lofað blíðum viðtökum, en ekki blóðugum niðurskurði, eins og nafnið gæti gefið til kynna. Það er út af öðru.

Að öðru leiti er dagskrá haustsins þannig: 28. sept, 5. okt og 12. okt verður 3ja kvölda sláturtíðartvímenningur. 19. okt, 26. okt og 2. nóv verður 3ja kvölda hausttvímenningur. 9. nóv, 16. nóv, 23. nóv og 30. nóv verður fjögurra kvölda aðaltvímenningur. 7. og 14. des verður 2ja kvölda aðventutvímenningur.

Stefna á sláturtíðartvímenning - Skessuhorn