Fréttir

true

Réðust um borð og tóku yfir stjórn skipsins

Landhelgisgæsla Íslands og sérsveit ríkislögreglustjóra fóru um borð í Bandero, skip Paul Watson samtakanna, síðastliðið fimmtudagskvöld, og tóku yfir stjórn skipsins. Áhöfnin á Hval 9 óskaði eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar fyrr um kvöldið þar sem áhöfnin taldi öryggi sínu ógnað auk þess sem skipstjóri Bandero hlýddi ekki fyrirmælum Landhelgisgæslunnar. Skipstjóri Bandero var handtekinn og skipið fært…Lesa meira

true

Óska eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga

Akraneskaupstaður hefur óskað eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga fyrir árið 2026. Þær eru veittar árlega þeim sem hafa lagt sitt af mörkum í að fegra umhverfi sitt í bænum með einum eða öðrum hætti. Frestur til að skila inn tilnefningum er 20. ágúst. Óskað er eftir tilnefningum í sjö mismunandi flokkum: Falleg einbýlishúsalóð – þar sem…Lesa meira

true

Sjóarinn sem snéri aftur – hressilegt viðtal úr sarpi

Meðfylgjandi viðtal við Magnús Karlsson birtist í sjómannablaði Skessuhorns 2025, skráð af Halldóri Jónssyni blaðamanni: Þegar Grundfirðingurinn Magnús Karlsson var ráðinn skipstjóri dráttarbáta Faxaflóahafna er að baki mikil saga þar sem dugnaðurinn, þroskinn, reynslan, torsótt menntunin og umfram allt þrautseigjan koma við sögu. Magnús fæddist í Ólafsvík en þangað leitaði móðir hans Unnur Magnúsdóttir frá…Lesa meira

true

Þurrt og bjart á Vesturlandi um verslunarmannahelgina

Útlit er fyrir bjart og fremur hlýtt veður um allt vestan- sunnanvert landið fram yfir verslunarmannahelgi. Á Norðurlandi má búast við einhverri væti, einkum á föstudag og laugardag. Í dag verður norðlæg eða breytileg átt 3-10 m/s og víða léttskýjað um landið vestanvert. Súld eða dálítil rigning norðaustan- og austanlands, en styttir upp í dag.…Lesa meira

true

Þrenn brautarmet voru slegin í Pósthlaupinu

Um tvö hundruð hlauparar tóku þátt í Pósthlaupinu, góðgerðarhlaupi Íslandspósts, sem haldið var í Dalabyggð laugardaginn 25. júlí. Í hlaupinu voru þrenn brautarmet slegin. Hlaupið hefur verið haldið árlega frá árinu 2022 og rennur þátttökugjald í hlaupinu óskipt til Björgunarsveitarinnar Óskar og ungmennafélagsins Ólafs Pá í Búðardal. Í karlaflokki í 50 kílómetrunum kom Daníel Þór…Lesa meira

true

Stefnir í fjölmennt og fjölbreytt unglingalandsmót

Unglingalandsmót UMFÍ fer fram á Sauðárkróki nú um verslunarmannahelgina. Ríflega þúsund þátttakendur á aldrinum 11–18 ára voru skráðir til leiks þegar lokað var fyrir skráningu í greinar á miðnætti á sunnudagskvöld. Auk foreldra og systkina má því fastlega búast við að gestafjöldi á Króknum vegna mótsins verði um eða yfir fimm þúsund. Þátttakendur eru skráðir…Lesa meira

true

Hús varð eldi að bráð

Eldur kom upp í timburhúsi við Skúlagötu í Stykkishólmi undir kvöld. Engan sakaði. Samkvæmt upplýsingum Skessuhorns er slökkvistarfi nú að ljúka. Húsið er ónýtt og vinnur slökkvilið að niðurrifi þess sem eftir stendur.Lesa meira

true

Líta atvikið mjög alvarlegum augum

Matvælastofnun lítur mjög alvarlegum augum á atvik sem varð í minkabúi í Mosfellsdal síðastliðna nótt, þar sem stórum hluta dýranna á búinu var sleppt lausum. „Ekki hefur verið staðfest með hvaða hætti atvikið bar að og er málið til rannsóknar hjá lögreglu. Skemmdarverk af slíkum toga eru til þess fallin að valda fjölda dýra mikilli…Lesa meira

true

Hellissandur breytir um svip vegna sólmyrkahátíðar

Almyrkvi af sólu verður miðvikudaginn 12. ágúst næstkomandi. Á vestustu nesjum landsins mun sólmyrkvans gæta lengst. Á Hellissandi á Snæfellsnesi er búist við fjölmenni, ekki þó síður vegna þess að tónlistarhátíðin Icelandic Eclipse fer þar fram dagana 11.-15. ágúst. Þessi fimm daga hátíð verður mekka tónlistar, lista, vísinda, vellíðunar og almyrkva, eins og segir í…Lesa meira

true

Hundruðum minka sleppt úr búrum í Mosfellsdal

Íbúar mega búast við skothvellum þegar minkarnir verða veiddir Í tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að snemma í morgun hafi nokkur hundruð eldisminkum verið sleppt úr búrum sínum á Dalsbúinu í Mosfellsdal. Búið er það síðasta loðdýrabúið á landinu þar sem minkar eru aldir vegna skinnaframleiðslu. Nákvæmur fjöldi dýra sem sleppt var liggur…Lesa meira