
Þurrt og bjart á Vesturlandi um verslunarmannahelgina
Útlit er fyrir bjart og fremur hlýtt veður um allt vestan- sunnanvert landið fram yfir verslunarmannahelgi. Á Norðurlandi má búast við einhverri væti, einkum á föstudag og laugardag. Í dag verður norðlæg eða breytileg átt 3-10 m/s og víða léttskýjað um landið vestanvert. Súld eða dálítil rigning norðaustan- og austanlands, en styttir upp í dag. Norðan- og norðvestan 8-15 í kvöld, en heldur hægari vestantil. Hiti 7 til 18 stig, hlýjast á Suður- og Vesturlandi. Norðvestan 8-18 m/sek á morgun, hvassast suðaustantil. Súld eða rigning norðaustan- og austanlands. Annars yfirleitt þurrt og bjart, en lítilsháttar rigning á Norðvesturlandi annað kvöld. Hiti breytist lítið.
Á laugardaginn verður norðvestan 8-15 m/s, hvassast austantil á landinu. Þurrt og bjart á Suður- og Vesturlandi. Súld eða rigning norðan- og austanlands, en dregur úr úrkomu þegar líður á daginn. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast sunnan- og vestantil.
Á sunnudag verður norðan- og norðvestan 5-13 m/sek. Víða léttskýjað sunnan- og vestanlands, en annars skýjað með köflum og úrkomulítið. Hiti breytist lítið.
Á mánudag, frídegi verslunarmanna, verður norðvestlæg eða breytileg átt 5-10 m/sek og skýjað með köflum, en bjartviðri sunnan heiða. Skúrir á stöku stað síðdegis. Hiti 9 til 18 stig, hlýjast á Suðurlandi.