
Lausir eldisminkar skipta nú hundruðum í Mosfellsdal. Ljósm. af fréttavef RUV / Ragnar Visage
Líta atvikið mjög alvarlegum augum
Matvælastofnun lítur mjög alvarlegum augum á atvik sem varð í minkabúi í Mosfellsdal síðastliðna nótt, þar sem stórum hluta dýranna á búinu var sleppt lausum. „Ekki hefur verið staðfest með hvaða hætti atvikið bar að og er málið til rannsóknar hjá lögreglu. Skemmdarverk af slíkum toga eru til þess fallin að valda fjölda dýra mikilli þjáningu, ótta, meiðslum og dauða. Jafnframt getur mikill fjöldi lausra minka haft alvarleg áhrif á villt fuglalíf og lífríkið í nágrenninu. Einnig er alifuglum og mögulega minni gæludýrum í nágrenni hætta búin ef fjöldi lausra minka er á ferð. Eigendur dýra í nágrenni eru hvattir til að tryggja öryggi þeirra með sem bestum hætti,“ segir í tilkynningu frá MAST.