
Hellissandur breytir um svip vegna sólmyrkahátíðar
Almyrkvi af sólu verður miðvikudaginn 12. ágúst næstkomandi. Á vestustu nesjum landsins mun sólmyrkvans gæta lengst. Á Hellissandi á Snæfellsnesi er búist við fjölmenni, ekki þó síður vegna þess að tónlistarhátíðin Icelandic Eclipse fer þar fram dagana 11.-15. ágúst. Þessi fimm daga hátíð verður mekka tónlistar, lista, vísinda, vellíðunar og almyrkva, eins og segir í tilkynningu frá samkomuhöldurum. Nú þegar er undirbúningur fyrir hátíðina kominn á fullan skrið og ýmis samkomu- og íverutjöld tekin að rísa á mótssvæðinu. Meðfylgjandi myndir tók Kristinn Jónasson bæjarstjóri í gær.