Sigurvegarar í karla- og kvennaflokki í 50 kílómetrunum. Ljósm. aðsend

Þrenn brautarmet voru slegin í Pósthlaupinu

Um tvö hundruð hlauparar tóku þátt í Pósthlaupinu, góðgerðarhlaupi Íslandspósts, sem haldið var í Dalabyggð laugardaginn 25. júlí. Í hlaupinu voru þrenn brautarmet slegin. Hlaupið hefur verið haldið árlega frá árinu 2022 og rennur þátttökugjald í hlaupinu óskipt til Björgunarsveitarinnar Óskar og ungmennafélagsins Ólafs Pá í Búðardal.