
Hundruðum minka sleppt úr búrum í Mosfellsdal
Íbúar mega búast við skothvellum þegar minkarnir verða veiddir
Í tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að snemma í morgun hafi nokkur hundruð eldisminkum verið sleppt úr búrum sínum á Dalsbúinu í Mosfellsdal. Búið er það síðasta loðdýrabúið á landinu þar sem minkar eru aldir vegna skinnaframleiðslu. Nákvæmur fjöldi dýra sem sleppt var liggur hins vegar ekki fyrir. Tilkynning um málið barst lögreglu klukkan rúmlega sjö í morgun. „Ekki er fyllilega ljóst hvernig það bar að, en rannsókn lögreglu er á frumstigi. Viðeigandi yfirvöld og eftirlitsstofnanir hafa verið upplýst um málið og hafa strax brugðist við. Við föngun minkanna verður skotvopnum beitt í Mosfellsdal í dag. Viðbúið er að íbúar og vegfarendur á svæðinu heyri skothvelli vegna þessa,“ segir í tilkynningu lögreglu.
Samkvæmt heimildum fréttastofu Vísis og Bylgjunnar eru vísbendingar um að sömu aðilar og stóðu að innbrotum í Reykjabú í Mosfellsdal í júní og í svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi í maí standi að baki verknaðinum.
Atburður þessi er litinn mjög alvarlegum augum. Ekki er vitað hversu mörgum dýrum tekst að sleppa, með tilheyrandi áhrifum á lífríkið.
Lögregla, starfsfólk Matvælastofnunar, heilbrigðiseftirlits auk fjölda meindýraeyða eru nú að störfum í Mosfellsdal.