
Stefnir í fjölmennt og fjölbreytt unglingalandsmót
Unglingalandsmót UMFÍ fer fram á Sauðárkróki nú um verslunarmannahelgina. Ríflega þúsund þátttakendur á aldrinum 11–18 ára voru skráðir til leiks þegar lokað var fyrir skráningu í greinar á miðnætti á sunnudagskvöld. Auk foreldra og systkina má því fastlega búast við að gestafjöldi á Króknum vegna mótsins verði um eða yfir fimm þúsund. Þátttakendur eru skráðir í 6.270 greinar, sem merkir að hver og einn þátttakandi tekur þátt í fimm til sex greinum á mótinu. Keppnisgreinar eru um tuttugu. Kökuskreytingar eru vinsælastar en meðal annarra greina má nefna pílukast, grasblak, handbolta, freestyle, bogfimi, knattspyrnu og frjálsum íþróttum. Einnig er keppt í upplestri, stafsetningu, sundi og fleiru. Á meðal einstakra greina sem góð skráning er í má nefna skák en þátttakendur í greininni hafa ekki verið jafn margir í tuttugu ár. Sömuleiðis er metskráning í hestaíþróttum og hefur þurft að færa upphaf greinarinnar laugardaginn 1. ágúst frá klukkan 11 til klukkan 10.