Fréttir

true

Víkingur steinlá fyrir KFA

Laugardaginn 4. júlí sótti Víkingur Ólafsvík KFA heim í 11. umferð 2. deildar karla í fótbolta. Fór leikurinn fram á SÚN-vellinum á Norðfirði, heimavelli Austfirðinga. Engin mörk voru skoruð í fyrri hálfleik en Víkingur reyndist sterkari aðilinn inni á vellinum til að byrja með. Síðari hálfleikur var svipaður og sá fyrri, liðin skiptust á að…Lesa meira

true

Erna er listamaður mánaðarins

Listfélag Akraness í samstarfi við Kallabakarí stendur fyrir vali á listamanni mánaðarins og er Erna Hafnes listamaður júlímánaðar. Allir eru velkomnir að kíkja á sýninguna á opnunartíma bakarísins.Lesa meira

true

Varað við vindi á morgun við Hafnarfjall

Vegagerðin bendir á að í nótt, aðfaranótt þriðjudags, verður allhvöss suðaustanátt undir Eyjafjöllum í nótt og á morgun með hviðum um 30 m/s. Hviður um 25 m/s þvert á veg á Reykjanesbraut og jafnvel einnig við Hafnarfjall á morgun, einkum nærri hádegi. Hægari vindur eftir klukkan 16 og lægir annað kvöld.Lesa meira

true

Guðný er rauðhærðasti Íslendingurinn

Bæjarhátíðin Írskir dagar fór fram á Akranesi í vikunni sem leið. Þetta er í 27. sinn sem Írskir dagar eru haldnir, en einn af föstum liðum hátíðarinnar frá upphafi er keppnin um titilinn Rauðhærðasti Íslendingurinn enda státa Írar af hæsta hlutfalli rauðhærðra í heiminum. Það var Guðný Sverrisdóttir frá Hólmavík sem sigraði í keppninni að…Lesa meira

true

Breiðablik sneri leiknum við á Akranesi

Breiðablik hafði betur gegn ÍA, 2:1, þegar liðin mættust í 13. umferð Bestu deildar karla á Elkem vellinum á Akranesi á laugardaginn. Skagamenn voru sterkari framan af leik og komust yfir á 32. mínútu. Ómar Björn Stefánsson vann þá boltann og átti góðan sprett upp völlinn áður en hann lagði hann fyrir Steinar Þorsteinsson sem…Lesa meira

true

Tekur við sem varaslökkviliðsstjóri

Sigurður Þór Elísson hefur verið settur tímabundið í embætti varaslökkviliðsstjóra hjá Slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar (SAH). Skipunin tók gildi 1. júlí síðastliðinn. Sigurður Þór hefur starfað hjá slökkviliðinu frá árinu 2002 og gegnt þar fjölbreyttum störfum. Hann hefur lokið margvíslegri fagmenntun við Brunamálaskóla HMS, meðal annars sem almennur slökkviliðsmaður, reykkafari, þjálfunarstjóri og varðstjóri. Frá árinu…Lesa meira

true

Óskað eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga

Hvalfjarðarsveit hefur auglýst eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga sveitarfélagsins árið 2026. Með viðurkenningunum er leitast við að hvetja íbúa til að leggja rækt við nærumhverfi sitt og vekja athygli á snyrtilegum görðum og vel hirtum býlum. Íbúar geta sent inn tilnefningar til 10. ágúst næstkomandi á netfang sveitarfélagsins. Að þeim fresti loknum munu fulltrúar umhverfis-, skipulags-,…Lesa meira

true

Borgarbyggð hvetur til samstillts átaks gegn kerfli

Borgarbyggð hvetur íbúa, landeigendur og bændur til að taka þátt í sameiginlegu átaki gegn aukinni útbreiðslu kerfils, sem hefur á undanförnum árum breiðst hratt út víða um sveitarfélagið. Samkvæmt sveitarfélaginu hefur kerfill náð fótfestu á ýmsum svæðum þar sem hann ryður náttúrulegum gróðri úr vegi. Þar sem plantan dreifir sér bæði með fræjum og rótarskotum…Lesa meira

true

Rannsóknarborun fyrsta skref í mati á kolefnisbindingu á Grundartanga

Nokkuð vel var mætt á íbúafund í Miðgarði í Hvalfjarðarsveit sl. fimmtudag þar sem kynnt var fyrirhuguð rannsóknarborun á vegum Carbfix, Elkem og Þróunarfélags Grundartanga. Markmið borunarinnar er að afla upplýsinga um jarðlög á Grundartanga og meta hvort þau henti til kolefnisbindingar í framtíðinni. Engin niðurdæling koldíoxíðs verður framkvæmd á þessu stigi. Á fundinum kynntu…Lesa meira

true

Landsmót hestamanna er hafið

Landsmót hestamanna 2026 er formlega hafið á Hólum í Hjaltadal og fyrstu keppendur hafa þegar riðið inn á keppnisvöllinn. Keppni í barnaflokki stendur nú yfir á aðalvellinum þar sem efnilegir knapar sýna glæsilega takta, á meðan dómar fara fram á fjögurra vetra hryssum á kynbótabrautinni. Eins og staðan er núna er Eva Hrönn Ásmundsdóttir frá…Lesa meira