Breiðablik sneri leiknum við á Akranesi

Breiðablik hafði betur gegn ÍA, 2:1, þegar liðin mættust í 13. umferð Bestu deildar karla á Elkem vellinum á Akranesi á laugardaginn. Skagamenn voru sterkari framan af leik og komust yfir á 32. mínútu. Ómar Björn Stefánsson vann þá boltann og átti góðan sprett upp völlinn áður en hann lagði hann fyrir Steinar Þorsteinsson sem skoraði með hnitmiðuðu skoti. ÍA fór því með eins marks forystu til hálfleiks.