
Guðný er rauðhærðasti Íslendingurinn
Bæjarhátíðin Írskir dagar fór fram á Akranesi í vikunni sem leið. Þetta er í 27. sinn sem Írskir dagar eru haldnir, en einn af föstum liðum hátíðarinnar frá upphafi er keppnin um titilinn Rauðhærðasti Íslendingurinn enda státa Írar af hæsta hlutfalli rauðhærðra í heiminum. Það var Guðný Sverrisdóttir frá Hólmavík sem sigraði í keppninni að þessu sinni, en 22 keppendur voru skráðir til leiks. Í dómnefnd sátu Ísabella Rós sigurvegari síðasta árs og móðir hennar Andrea Ýr Arnarsdóttir fyrrverandi oddviti Hvalfjarðarsveitar, en mæðgurnar eru báðar rauðhærðar.