Frá afhendingu umhverfisviðurkenninga 2025. F.v. Birkir Snær Guðlaugsson þáverandi formaður menningar- og markaðsnefndar, Björgvin Helgason og Dagný Hauksdóttir í Eystra-Súlunesi, Kristján Karl Hilmarsson og Brynhildur Bjarnadóttir í Hlíðarbæ 18 og Elín Ósk Gunnarsdóttir sem sæti á í umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd.

Óskað eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga

Hvalfjarðarsveit hefur auglýst eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga sveitarfélagsins árið 2026. Með viðurkenningunum er leitast við að hvetja íbúa til að leggja rækt við nærumhverfi sitt og vekja athygli á snyrtilegum görðum og vel hirtum býlum.

Óskað eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga - Skessuhorn