
Niðurdælingarhola á vegum Carbfix á Hellisheiði. Ljósm. Carbfix
Rannsóknarborun fyrsta skref í mati á kolefnisbindingu á Grundartanga
Nokkuð vel var mætt á íbúafund í Miðgarði í Hvalfjarðarsveit sl. fimmtudag þar sem kynnt var fyrirhuguð rannsóknarborun á vegum Carbfix, Elkem og Þróunarfélags Grundartanga. Markmið borunarinnar er að afla upplýsinga um jarðlög á Grundartanga og meta hvort þau henti til kolefnisbindingar í framtíðinni. Engin niðurdæling koldíoxíðs verður framkvæmd á þessu stigi. Á fundinum kynntu fulltrúar samstarfsaðilanna verkefnið og svöruðu spurningum fundargesta. Umræður voru hóflegar og bárust aðeins fáeinar spurningar úr sal. Fundarstjóri var Bjarki Þorsteinsson, sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar.