
Svipmynd frá fyrsta degi mótsins. Ljósm. landsmot.is
Landsmót hestamanna er hafið
Landsmót hestamanna 2026 er formlega hafið á Hólum í Hjaltadal og fyrstu keppendur hafa þegar riðið inn á keppnisvöllinn. Keppni í barnaflokki stendur nú yfir á aðalvellinum þar sem efnilegir knapar sýna glæsilega takta, á meðan dómar fara fram á fjögurra vetra hryssum á kynbótabrautinni. Eins og staðan er núna er Eva Hrönn Ásmundsdóttir frá Geysi efst í barnaflokki með einkunnina 8,92 og talsvert forskot á næstu keppendur.