Fréttir

true

Þúsundir skemmtu sér á Brekkusöng

Bæjarhátíðin Írskir dagar hefur staðið yfir alla vikuna, en lýkur í dag. Meðal hápunkta hátíðarinnar er Brekkusöngur á Þyrlupallinum á Jaðarsbökkum. Skemmtunin er í boði Club71 sem nú bauð gestum í brekkuna í nítjánda sinn. Það voru Magni og Hreimur sem spiluðu og sungu og héldu uppi frábærri stemningu í veðurblíðunni. Eftir Brekkusönginn héldu margir…Lesa meira

true

Grótta með sigur á Skagakonum í uppbótartíma

ÍA mátti sætta sig við 2–1 tap gegn Gróttu þegar liðin mættust í Lengjudeild kvenna í Akraneshöllinni sl. fimmtudag. Skagakonur höfðu yfirhöndina lengst af, en gestirnir snéru leiknum sér í vil með tveimur mörkum seint í síðari hálfleik, þar af sigurmarki í uppbótartíma. Heimakonur byrjuðu leikinn vel og komust yfir á 12. mínútu þegar Þorbjörg…Lesa meira

true

Pollur Bílaþvottur færir sig um set

Eftir fimm ára starf á Esjubraut 45 á Akranesi flytur Pollur Bílaþvottur nú starfsemi sína að Smiðjuvöllum 17. Að sögn eigandans, Alexanders Dags Helgasonar, er nýja húsnæðið betur sniðið að starfseminni og gerir fyrirtækinu kleift að bæta þjónustu við viðskiptavini. Alexander stofnaði fyrirtækið aðeins 18 ára gamall árið 2021 og segir viðtökurnar frá fyrsta degi…Lesa meira

true

Nýr lýðheilsufulltrúi ráðinn í Dalabyggð

Einar Björn Þorgrímsson hefur verið ráðinn lýðheilsufulltrúi Dalabyggðar og tekur við starfinu 15. ágúst næstkomandi af Ísaki Sigfússyni. Lýðheilsufulltrúi hefur meðal annars það hlutverk að vinna að eflingu lýðheilsu og bæta vellíðan íbúa, styðja við forvarna- og heilsueflingarverkefni og efla samstarf milli stofnana og félagasamtaka á þeim vettvangi. Einar er með BS-gráðu í íþrótta- og…Lesa meira

true

Festa í sessi stuðning ríkisins við NLFÍ

Heilbrigðisráðherra, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands og forstjóri Heilsustofnunar NLFÍ í Hveragerði hafa undirritað nýjan fjögurra ára þjónustusamning um sérhæfða endurhæfingu. „Samningurinn markar mikilvægt skref í að efla stöðugleika og fyrirsjáanleika í þjónustu við einstaklinga sem þurfa á endurhæfingu að halda. Hámarksfjárhæð samningsins nemur tæpum 1,5 milljörðum króna á ári. Með honum er tryggður traustur grunnur fyrir…Lesa meira

true

Krefja ríkið um efndir samninga vegna barna með fjölþættan vanda

Á aukaaðalfundi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi síðastliðinn miðvikudag var samþykkt ályktun þar sem tekið er undir yfirlýsingu Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 24. júní 2026 þar sem harðlega er gagnrýnd ný reglugerð mennta- og barnamálaráðuneytisins um þjónustu við börn með fjölþættan vanda: „Fundurinn telur óásættanlegt að ráðuneytið setji reglugerð sem gengur gegn samkomulagi ríkis og sveitarfélaga…Lesa meira

true

Miðfellsfljótið reyndist þeim loksins gjöfult

„Í rúman áratug höfum við Davíð Ingason farið til veiða í Laxá í Leirársveit um mánaðamótin júní – júlí og oftast veitt mjög vel,“ segir Helgi Sigurðsson. ,,Þó hefur Miðfellsfljótið ekki verið okkur gjöfult og við höfðum aldrei náð að landa laxi á þessum fræga veiðistað þegar við héldum þangað snemma í morgun. Á leiðinni…Lesa meira

true

Mótmæla óvissu sem nýtt innviðafélag skapar

Auka aðalfundur SSV var haldinn 1. júlí síðastliðinn. Þar var ályktað um nýtt innviðafélag í eigu ríksins og það sagt jákvætt skref hjá stjórnvöldum að stofna sérstakt innviðafélag í því skyni að flýta mikilvægum samgöngubótum. „Umræða um nýjar leiðir varðandi fjármögun samgöngubóta hefur átt sér stað í langan tíma og því mikilvægt að vanda til…Lesa meira

true

Sveitarfélög á Vesturlandi álykta um Breiðafjarðarferjuna Baldur

Á aukaaðalfundi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi síðastliðinn miðvikudag samþykktu sveitarfélög á Vesturlandi samhljóða ályktun vegna Breiðafjarðarferjunnar Baldurs. Í henni er tekið undir með sameiginlegri ályktun Sveitarfélagsins Stykkishólms, Vesturbyggðar og Reykhólahrepps vegna ákvörðunar innviðaráðherra um að færa Breiðafjarðarferjuna Baldur úr reglubundnum siglingum um Breiðafjörð. „Þá ítrekar fundurinn fyrri ályktanir sínar um mikilvægi Baldurs fyrir samgöngur um…Lesa meira

true

Sjálfstæðisflokkur sækir verulega í sig veðrið í Norðvesturkjördæmi

Ríkisútvarpið hefur nú birt nýja könnun Gallup um fylgi flokka til Alþingis. Sé könnunin brotin niður á einstök kjördæmi má sjá að talsverð hreyfing er á fylgi flokka í Norðvesturkjördæmi. Stærsta breytingin er sú að Sjálfstæðisflokkur bætir nú verulega við sig fylgi í kjördæminu, mælist með 30,4%, en hefur í undangengnum könnunum verið að mælast…Lesa meira