Krefja ríkið um efndir samninga vegna barna með fjölþættan vanda

Á aukaaðalfundi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi síðastliðinn miðvikudag var samþykkt ályktun þar sem tekið er undir yfirlýsingu Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 24. júní 2026 þar sem harðlega er gagnrýnd ný reglugerð mennta- og barnamálaráðuneytisins um þjónustu við börn með fjölþættan vanda: „Fundurinn telur óásættanlegt að ráðuneytið setji reglugerð sem gengur gegn samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025 um breytta ábyrgðarskiptingu í málefnum barna með fjölþættan vanda. Með reglugerðinni hefur ríkið einhliða breytt forsendum samkomulagsins, þrengt skilgreiningu þess hóps barna sem fellur undir ábyrgð ríkisins og velt auknum kostnaði og ábyrgð yfir á sveitarfélög án samráðs eða samkomulags.“