
„Jafnframt leiðir óskýr hugmyndafræði til þess að óvissa ríkir um tvöföldun Hvalfjarðarganga, hver taki ákvörðun um legu ganganna, hvernig staðið verði að fjármögnun og mögulegri innheimtu og hvort gjaldtaka verði á eldri Hvalfjarðargöngum, sem löngu eru uppgreidd af vegfarendum.“ Ljósm. úr safni Skessuhorns.
Mótmæla óvissu sem nýtt innviðafélag skapar
Auka aðalfundur SSV var haldinn 1. júlí síðastliðinn. Þar var ályktað um nýtt innviðafélag í eigu ríksins og það sagt jákvætt skref hjá stjórnvöldum að stofna sérstakt innviðafélag í því skyni að flýta mikilvægum samgöngubótum. „Umræða um nýjar leiðir varðandi fjármögun samgöngubóta hefur átt sér stað í langan tíma og því mikilvægt að vanda til verka þannig að baki liggi skýr tilgangur innviðafélagsins og skýr hugmyndafræði um framkvæmdir, eignarhald verkefna og innheimtu veggjalda,“ segir í ályktun aukaaðalfundar SSV, en jafnframt sagt: