
Sjálfstæðisflokkur sækir verulega í sig veðrið í Norðvesturkjördæmi
Ríkisútvarpið hefur nú birt nýja könnun Gallup um fylgi flokka til Alþingis. Sé könnunin brotin niður á einstök kjördæmi má sjá að talsverð hreyfing er á fylgi flokka í Norðvesturkjördæmi. Stærsta breytingin er sú að Sjálfstæðisflokkur bætir nú verulega við sig fylgi í kjördæminu, mælist með 30,4%, en hefur í undangengnum könnunum verið að mælast með um eða yfir 20% fylgi. Flokkurinn fengi tvo kjördæmakjörna þingmenn samkvæmt þessu. Ásamt Suðurkjördæmi er þetta mesta fylgi Sjálfstæðisflokksins á landsvísu.