Talið er að um átta þúsund manns hafi mætt. Ljósm. mm

Þúsundir skemmtu sér á Brekkusöng

Bæjarhátíðin Írskir dagar hefur staðið yfir alla vikuna, en lýkur í dag. Meðal hápunkta hátíðarinnar er Brekkusöngur á Þyrlupallinum á Jaðarsbökkum. Skemmtunin er í boði Club71 sem nú bauð gestum í brekkuna í nítjánda sinn. Það voru Magni og Hreimur sem spiluðu og sungu og héldu uppi frábærri stemningu í veðurblíðunni. Eftir Brekkusönginn héldu margir heim en aðrir lögðu leið sína á Lopapeysuna á hafnarsvæðinu, þar sem fjöldi hljómsveita og tónlistarfólks kom fram. Gleðin stóð þar fram undir morgun.